154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[15:18]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg við 1. umræðu um þetta frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga er varðar gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Ég, eins og aðrir sem hér hafa tekið til máls, fagna þessu frumvarpi. Við í Samfylkingunni styðjum það sannarlega að börn fái gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskóla af því að við vitum og sagan segir okkur að allt sem stuðlar að jafnrétti og jöfnuði barna og ungmenna bætir heilsu þeirra, stöðu þeirra í samfélaginu, heilsu fjölskyldunnar, möguleika þeirra til að læra og möguleika þeirra til að einbeita sér. Holl næring, fjölbreytt fæði eykur möguleika þeirra á að þroskast eins og þau eiga rétt á.

Fram hefur komið í umræðum um gjaldfrjálsar skólamáltíðir að kannski sé þessum peningum ekki vel varið, það væri þá betra að styðja bara þær fjölskyldur sem ekki hafa efni á því að greiða fyrir máltíðirnar. Ég held að þar örli á svolitlum misskilningi og vísa m.a. í það sem fram kom í ræðu hv. þm. Ágústs Bjarna Garðarssonar. Það er ekki endilega alltaf efnahagslegt val foreldra að kaupa skólamáltíðir fyrir börnin sín og þá er það þannig að við sem samfélag berum ábyrgð á því að þessi börn, alveg sama hvaða foreldra þau eiga og hvaða tekjur foreldrar þeirra hafa, geti fengið gjaldfrjálsa skólamáltíð. Ég trúi því að þetta skref sé það fyrsta af mörgum sem við munum taka í framtíðinni til að gera þetta að reglu í skólakerfinu. Við vitum að sjálfsögðu að það búa allt of mörg börn á Íslandi við fátækt, þúsundir barna. Þau eru, eins og við öll vitum, aðallega frá fjölskyldum einstæðra mæðra, einstæðra foreldra og einnig barnmörgum foreldrum og auðvitað líka tekjulágum foreldrum. En við jafnaðarmenn, við í Samfylkingunni, viljum að einmitt til að jafna þessi kjör þá notum við tilfærslukerfið, að við notum skattkerfið til að greiða niður og veita börnum ókeypis skólamáltíðir. Þannig vinnum við og þannig er það í rauninni að öll börn í skólanum sitja bókstaflega við sama borð og fá öll að borða.

Ég þarf í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð um þetta mál að þessu sinni. Við munum að sjálfsögðu gaumgæfa það vel í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Fyrir liggur að málið er lagt fram sem hluti af kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og ég á ekki von á öðru en að fyrir því sé meira en ríflegur meiri hluti hér á hinu háa Alþingi enda mikið framfaramál og tímabært skref. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)