154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[15:26]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta frumvarp. Ég held að það hafi verið ofboðslega stór og mikilvægur áfangi þegar langtímakjarasamningar náðust. Ég get meira að segja sætt mig við það að í þeim aðstæðum sem uppi eru núna hafi verið ástæða fyrir ríkið til að koma inn með ákveðna hvata til að ná þessu samkomulagi, þó að ég sé almennt á þeirri skoðun að þegar verið er að semja um kaup og kjör á markaði eigi ríkið ekki að sitja við það borð og ekki að vera þátttakandi í því heldur eigi launþegar og vinnuveitendur að koma sér saman um það kaup og þau kjör sem þeir vilja hafa í boði.

Að því sögðu þá verð ég að segja það að mér hefur ávallt þótt og þykir það enn helber vitleysa að vera með gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Ég er auðvitað sammála því að öll börn eigi að hafa aðgengi að hollum og góðum mat, bæði á skólatíma sem og heima hjá sér. Og sem betur fer er það þannig í íslensku samfélagi að langflestir foreldrar hafa fulla burði til að fæða og klæða börnin sín. En það er því miður þannig að ákveðnir aðilar ströggla við það og þá er sjálfsagt að samfélagið komi inn í það og létti undir baggann með þeim með einhvers konar stuðningsumhverfi og utanumhaldi. Ég er reyndar nokkuð viss um það að í langflestum sveitarfélögum og skólum þá sé það raunin. Ég minnist þess alla vega þegar ég var í bæjarstjórn í Mosfellsbæ og við vorum að skoða þessi mál einmitt upp úr hruni, við hlustuðum á það sem Finnar höfðu gert á sínum tíma og vorum jafnvel að bjóða upp á frían hafragraut í morgunmat og margir töldu það hafa reynst vel, þá tryggðum við það auðvitað að þegar svo bar undir að fólk gat ekki greitt fyrir skólamáltíðir fengu börnin engu að síður að borða. Ég held því að samfélögin geti svo vel tekið utan um þau fáu sem eru í þeirri stöðu að geta ekki greitt fyrir skólamáltíðir.

Ég hafði verulegar áhyggjur af því þegar byrjað var að ræða þetta mál að þingið væri líka með svona frekjulegum hætti að ganga inn á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Ég átta mig alveg á því að útfærslan sem hér er er einmitt til þess fallin að sveitarfélögin geti þó þegið greiðslur úr jöfnunarsjóði velji þau að fara þessa leið. En ég hef reyndar líka áhyggjur af því hvernig við notum almennt Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og hvernig hann er nýttur til að fjármagna sveitarfélögin. Ég hef ekki verið hrifin af því kerfi. Það hefur verið mjög erfitt að breyta einhverju og ég hef frekar viljað horfa til tekjustofna sveitarfélaga. Ég átta mig á því að það þarf líka að vera einhvers konar jöfnunarkerfi en ég er ekki viss um að það sé til mikilla bóta að bæta enn einum flokknum inn í jöfnunarsjóðinn.

Ég hef líka áhyggjur af því hvert svona umræða leiðir okkur. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að skattgreiðendur eigi að borga skólamáltíðir fyrir öll börn í grunnskólum, hvað þá með leikskólana? Hvað með framhaldsskólana? Hvað með háskólana? Hvað með eldri borgara? Og svo mætti lengi telja áfram. Ég segi það sem ég hef sagt í langan tíma frá því að ég byrjaði að taka þátt í pólitík og meira að segja fyrir þann tíma, þegar ég var í stjórn Heimilis og skóla og þessi mál voru gjarnan rædd, þá var það afstaða okkar sem vorum í þeirri stjórn á þeim tíma að ekki væri ástæða til að berjast fyrir gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Það væri mun meiri ástæða til að tryggja að boðið væri upp á hollan og góðan mat í grunnskólunum, helst líka að það væri ákveðið valfrelsi í því fólgið þannig að hægt væri að koma til móts við ákveðnar sérþarfir, hvort sem það væri vegna ofnæmis eða ákveðins lífsstíls eða annars þess háttar. Ég óttast að þegar verið er að fara í gjaldfrjálsar skólamáltíðir geti það dregið úr gæðum, geti dregið úr valmöguleikum.

Eins og hér má heyra, virðulegur forseti, þá hef ég flest á hornum mér þegar kemur að gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Ég sé á því ýmsa vankanta við útfærslu en fyrst og fremst finnst mér þetta bara grundvallarspurning, hvort skattgreiðendur eigi að greiða mat fyrir öll börn á Íslandi þegar þau eru í skóla. Það finnst mér langstærsta spurningin og henni hef ég svarað neitandi, en að sjálfsögðu á samfélagið að koma inn þegar þörf er á.

Að því sögðu þá sagði ég líka í upphafi að ég styddi kjarasamninga og það var gott að við náðum þessum kjarasamningum og mjög mikilvægt. En þetta er hluti þess samkomulags sem fer ofboðslega illa í mig.