154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[16:01]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030, sem er að finna á þskj. 1505, mál nr. 1036. Með þessari tillögu til þingsályktunar er annars vegar lögð fram ferðamálastefna til ársins 2030, með skýrri framtíðarsýn, markmiðum og áherslum, og hins vegar aðgerðaáætlun til að fylgja eftir þeirri stefnu með 43 skilgreindum aðgerðum.

Þingsályktunartillagan er í samræmi við það sem kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að framtíðarsýn ferðaþjónustu til ársins 2030 verði fylgt eftir með aðgerðaáætlun sem styður við langtímamarkmið og áherslur í ferðamálastefnu. Á síðasta kjörtímabili var unninn svokallaður stefnurammi ferðaþjónustu sem innihélt ákveðin áhersluatriði. Haustið 2022 hófst vinna innan menningar- og viðskiptaráðuneytis við að yfirfara og uppfæra stefnurammann og lauk þeirri vinnu í byrjun árs 2023. Í uppfærðum stefnuramma, sem myndar grunn að þeirri ferðamálastefnu til 2030 sem hér er lögð fram, eru 12 áherslur sem dreifast á fjórar lykilstoðir ferðaþjónustunnar, þ.e. efnahag, samfélag, umhverfi og gesti. Vinna við að aðgerðabinda þessar áherslur hófst í kjölfarið og var lagt upp með að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu myndi fylgja eftir þeirri framtíðarsýn, markmiðum og áherslum sem koma fram í ferðamálastefnu til ársins 2030.

Í maí árið 2023 voru skipaðir sjö starfshópar sem falið var að vinna tillögur að aðgerðum inni í aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu. Verkefnið í heild sinni hefur verið leitt af stýrihópi á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis með lykilatriðum á sviði ferðaþjónustu og var búin til sérstök vefsíða þar sem allar upplýsingar um verkefnið er að finna. Sú vefsíða ber heitið ferdamalastefna.is.

Starfshópunum sjö, sem gerð eru ágæt skil í greinargerð með tillögunni, var ætlað að ná utan um alla sjálfbærni og orkuskipti, samkeppnishæfni og verðmætasköpun, rannsóknir og nýsköpun, uppbyggingu áfangastaða, hæfni og gæði, heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónustu og svo menningartengda ferðaþjónustu. Þá var lagt upp með að hafa verkefnið um gerð ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun opið og gagnsætt á öllum stigum og að unnið yrði í virku samráði við þá sem að ferðaþjónustu koma með einum eða öðrum hætti. Er því um stefnumótun að ræða sem kemur jafnt frá stjórnvöldum og atvinnugreininni og endurspeglar sameiginlegar áherslur og framtíðarsýn. Alls komu um 100 manns beint að þessari vinnu í gegnum starfshópana sjö og stýrihópinn en óbeint komu mun fleiri aðilar og haghafar að vinnunni í gegnum allt það samráð sem átt hefur sér stað.

Í nóvember 2023 voru fyrstu drög að aðgerðum í ferðamálastefnu kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og var í framhaldinu unnið úr þeim umsögnum sem þar bárust. Í febrúar og mars 2024 var boðað til opinnar umræðu og kynningarfunda sem ferðamálaráðherra hélt um land allt þar sem farið var yfir drög að ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar. Í lok febrúar 2004 voru endanleg drög að tillögu til ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun sett í samráðsgátt stjórnvalda og var í framhaldi af því farið yfir þær umsagnir sem bárust sem og athugasemdir og ábendingar sem komið höfðu fram á fyrri stigum. Hér má fullyrða, virðulegi forseti, að aldrei fyrr hafi jafn ítarlegt samráð átt sér stað við stefnumótun á sviði ferðaþjónustu, enda er það forsenda fyrir því að vel takist til með þessa lykilatvinnugrein okkar.

Þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustu má segja að hafi aukist til muna undanfarin ár. Ferðaþjónustan er í dag lykilatvinnugrein á Íslandi, hvort sem litið er til veltu, fjölda starfsfólks og/eða mikilvægi drifkraftar hagvaxtar. Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2023 nam til að mynda 8,8% samkvæmt ferðaþjónustureikningum Hagstofunnar og hefur aldrei verið stærri. Um 23.000 einstaklingar störfuðu við ferðaþjónustu á Íslandi árið 2023 og heildarneysla ferðamanna hefur aldrei verið meiri en á síðasta ári eða rúmlega 845 milljarðar kr.

Þetta eru jákvæðar tölur og stórar í öllu samhengi, virðulegi forseti, en við vitum að það er hörð alþjóðleg samkeppni þegar kemur að ferðaþjónustu og skjótt skipast veður í lofti. Í þessu samhengi er því afar mikilvægt að við komum okkur saman um skýra framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og að við vinnum samhent að vel skilgreindum og markvissum aðgerðum til næstu ára til að treysta undirstöður greinarinnar, tryggja sjálfbærni hennar og stöðugleika til lengri tíma.

Að því er efnisatriði þessarar tillögu til þingsályktunar varðar þá er í upphafi hennar kveðið á um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og markmið með ferðamálastefnu. Hér er sem sagt um hefðbundna framsetningu stefnumótunar að ræða þar sem sýnin og meginmarkmiðin eru sett fram í upphafi. Framtíðarsýnin er að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni jafnvægis á milli efnahags, umhverfis og samfélagslegra þátta. Að hér verði til staðar arðsöm samkeppnishæf ferðaþjónusta sem starfi í sátt við bæði land og þjóð og sem sé þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun. Að ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og verði til lengri tíma ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs. Meginmarkmið í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar er að tryggja þessa framtíðarsýn og að styðja við sjálfbærni í ferðaþjónustu á öllum sviðum.

Varðandi áhersluþætti ferðamálastefnu þá er, eins og áður segir, lögð áhersla á jafnvægi og samþættingu milli eftirfarandi fjögurra lykilstoða, þ.e. efnahags, samfélags, umhverfis og gesta. Undir efnahagslegum þætti kemur m.a. fram að lögð verði áhersla á aukna framleiðni í ferðaþjónustu, verðmætasköpun og samkeppnishæfni um land allt. Einnig á framþróun sem byggi á tækni, gögnum, nýsköpun, vöruþróun, mannauði og menntun, sem og markvissa sókn á verðmæta markaði og markhópa. Undir samfélagslegum þætti er m.a. lögð áhersla á jákvæð áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélög, mannauð, aukin lífsgæði um land allt og að atvinnugreinin efli lífvænleg og sjálfbær samfélög. Einnig á stjórnun og uppbyggingu áfangastaða og að gestir ferðist um land allt, árið um kring. Undir umhverfislegum þætti er m.a. lögð áhersla á minnkandi kolefnisspor ferðaþjónustunnar og forystuhlutverk í orkuskiptum með nýtingu vistvænna orkugjafa. Einnig er kveðið á um jafnvægi milli hagnýtingar og verndar náttúru, og að uppbygging innviða taki mið af því, sem og á virðingu fyrir þolmörkum og álagsstýringu á áfangastöðum ferðamanna.

Undir þeim þætti sem snýr að gestinum, ferðamanninum, er m.a. lögð áhersla á að upplifun gesta sé betri eða í samræmi við væntingar og að náttúra, menning og fjölbreytt afþreying stuðli að einstakri upplifun gesta. Einnig er áhersla lögð á að fagmennska, gæði og öryggi einkenni íslenska ferðaþjónustu.

Virðulegur forseti. Kjarninn í þeirri tillögu til þingsályktunar sem ég mæli hér fyrir er síðan sú aðgerðaáætlun sem fylgir ferðamálastefnunni. Með aðgerðaáætluninni eru lagðar til 43 skilgreindar og tímasettar aðgerðir sem ná til þeirra 12 áhersluatriða sem koma fram í ferðamálastefnu og skiptast þær niður í fimm flokka, þ.e. rannsóknir og gögn, efnahag, samfélag, umhverfi og gesti. Aðgerðirnar eiga uppruna sinn í umfangsmikilli vinnu sem starfshóparnir sjö, sem ég hef hér fjallað um, hafa unnið á undanförnum 12 mánuðum. Eignarhald þessara aðgerða er því að miklu leyti hjá þeim breiða og fjölbreytta hópi sem kom að þeirri vinnu, jafnt úr atvinnulífinu og háskólaumhverfinu sem og úr stjórnsýslunni. Það er að mínu mati mikilvægt fyrir framgang þessara aðgerða. Tímans vegna mun ég ekki fara hér í framsögu við 1. umræðu í gegnum allar þessar 43 aðgerðir hverja fyrir sig. Þær eru sem áður segir á mjög fjölbreyttum sviðum ferðaþjónustu, allar mikilvægur liður í aðgerðum til að ná fram áherslum og meginmarkmiðum og þeirri sýn sem hér er sett fram og brýnt að koma þeim til framkvæmda sem fyrst. Í dæmaskyni get ég hins vegar nefnt aðgerðir sem snúa að innviðum í ferðaþjónustu: Álagsstýring, markaðssetning, menntun, gæða- og umhverfisvottun, öryggismál, rannsóknir, úrbætur í gagnaöflun og notkun gagna, nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu, einföldun og aukin skilvirkni regluverks, endurskoðun á fyrirkomulagi gjaldtöku, eftirlit með heimagistingu, áhersla á menningartengda ferðaþjónustu, styrking áfangastofa, samstarf um móttöku skemmtiferðaskipa. Og svo mætti áfram telja, virðulegi forseti. Þetta eru flestallt mál sem hljóma auðvitað kunnuglega í umfjöllun jafnt innan ferðaþjónustunnar sem og hér í þingsal þegar við fjöllum um þessi mál.

Virðulegi forseti. Ég tel hér um tímamótastefnumótunarvinnu að ræða. Við erum hér að horfa á framlagningu á heildstæðri stefnumótun á sviði ferðaþjónustu með mjög breiðri aðkomu þeirra sem starfa á vettvangi og haghafa, enda er það einkenni ferðaþjónustunnar að hún teygir anga sína víða í samfélag og atvinnulíf og eru því gerð mjög góð skil í greinargerð með þessari tillögu. Ég bind vonir við að við fáum síðan góða umfjöllun eins og ávallt hér um þetta þingskjal á Alþingi sem mun nýtast áfram í þessari vinnu að stefnunni og þeim aðgerðum sem hér eru settar fram til ársins 2030.

Að lokinni þessari 1. umræðu legg ég til að þingsályktunartillögunni verði vísað til hv. atvinnuveganefndar til frekari umfjöllunar.