154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[16:12]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Mig langar bara rétt að koma hérna upp og ræða um þessa áætlun. Ég las hana yfir í gær og líst bara vel á plaggið. Ég hef náttúrlega sýnt þessu mikinn áhuga í gegnum tíðina, ferðaþjónustunni og uppbyggingu hennar. Það er margt ánægjulegt í þessu eins og með þolmarkarannsóknir og slíka hluti, sem við hæstv. ráðherra höfum rætt í gegnum tíðina, í fjárlaganefnd á sínum tíma. Þetta er orðin ein af okkar höfuðatvinnugreinum og er gríðarlega þjóðhagslega mikilvæg bara fyrir afkomu lands og þjóðar. Skatttekjur eru núna áætlaðar um 160 milljarðar af greininni, 70 milljarðar í virðisauka og aðrar skatttekjur eru einhverjir 90 milljarðar. En ég hef alltaf, þegar við tölum um þetta efni, komið því svona rétt að að allt Ísland allt árið eigi að vera markmið upp á dreifingu, að skapa þær forsendur að ferðamenn dreifist vel um landið og að við tölum ekki bara um Ísland allt árið heldur um allt Ísland allt árið. Það er það sem þarf stöðugt að koma inn á.

Ég vil síðan koma inn á uppbyggingu á samgönguinnviðum okkar sem tengjast ferðaþjónustunni. Það sem er sérkenni íslenskrar ferðaþjónustu að mínu mati er fjöldi bílaleigubíla. Íslensk ferðaþjónusta — við erum að selja flug og bíl. Það minnir svolítið á gömlu dagana þegar verið var að selja ferðir frá Íslandi, flug og bíl til Evrópu og slíkt. En þetta er einkennandi fyrir íslenska ferðaþjónustu. Það er mikill fjöldi af bílaleigubílum og þess vegna þurfum við svolítið að miða okkar ferðaþjónustu við hvernig við erum að dreifa ferðamönnunum. Við þurfum að vera með öruggt, gott og öflugt samgöngukerfi sem býður upp á öruggar leiðir. Það er náttúrlega oft töluvert álag fyrir ferðamenn að koma hingað að vetrarlagi varðandi vetrarþjónustu á-og slíkt. Við erum víða með mjög stór verkefni. Vetrarþjónusta í samgöngum er gríðarlega mikilvæg í þessu, sérstaklega núna þegar okkur hefur tekist að dreifa erlendum ferðamönnum betur yfir allt árið þannig að þegar þeir eru að keyra vítt og breitt yfir háveturinn þá er mikilvægt og miklar kröfur um það víða að vera með vetrarþjónustu við ferðamenn.

Ég vil síðan líka rétt koma inn á mikilvægi uppbyggingar á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum. Þar er uppbygging og það hefur gengið vel að byggja upp Akureyrarflugvöll. Hann er kominn á allt annan stað en hann var kannski fyrir 10, 15, 20 árum, þannig að þar eru að skapast allar forsendur fyrir því að hægt sé að nýta þann flugvöll sem svona hlið inn í landið. Það hefur bara gengið vel undanfarin misseri, Easyjet í vetur og við erum að sjá Transavia og fleiri erlend flugfélög fljúga inn á Akureyri. Og nú viljum við hefja uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli næst til að skapa svipaðar forsendur fyrir innviðunum til að koma ferðamönnum þar inn og skapa möguleika á því að dreifa ferðamönnum sem mest. En auðvitað er það alltaf markaðsfræðin, auðvitað fara ferðamenn þangað sem þá langar að fara, en fyrsta forsendan til að skapa þær aðstæður fyrir ferðamenn til að koma beint inn er alltaf sú að innviðirnir séu til staðar til að koma til móts við þær þarfir. Þetta hefur okkur tekist og við erum að sjá stór skref tekin á Akureyri og næst eru það Egilsstaðir.

Það er alveg ljóst, og þess vegna er þetta mikilvægt plagg, að íslensk ferðaþjónusta er raunverulega öflugasta byggðastefnan eða það sem hefur hjálpað íslenskri byggð, dreifbýlinu, einna mest síðastliðin 15–20 ár frá því að ferðamönnum fjölgaði úr 500.000 árið 2010 upp í 2,2 til 2,3 milljónir eins og við sjáum núna og jafnvel í 2,4 á þessu ári, 2024. Þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að vanda vel til og auðvitað er það líka gott upp á framtíðina þegar við erum að horfa svona til lengri framtíðar varðandi ferðaþjónustuna: Hvert ætlum við að stefna? Hvernig ætlum við að sinna þessu til lengri framtíðar. Það kemur nefnilega í ljós, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, í landsframleiðslu á Íslandi — 8,8% á síðasta ári. Við vorum með fyrir Covid í kringum 8% í einhver ár og gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu 2018, þegar þær voru kannski mestar hlutfallslega, voru um 40–45% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar, í fyrra 32%, þannig að við sjáum að hagstærðirnar eru mjög stórar og skapa raunverulega undirstöðu undir okkar lífskjörum.

Ég er bara rétt að klára þetta, kem svona örstutt inn í þetta. Það er hægt að tala lengi um ferðaþjónustuna en það er sjaldan sem við höfum tök á að ræða hana hér. Þetta er mikilvægt plagg og nú er bara að vinna eftir henni og þó að ég hafi ekki alveg náð að fara í gegnum allar aðgerðirnar 43 í gær sem hæstv. ráðherra talaði um hér mun ég örugglega gera það. En það er gríðarlega mikilvægt og kannski mesti þjóðhagslegi ábati íslenskrar ferðaþjónustu að nýta þá fjárbindingu sem nú er til staðar í kerfinu vítt og breitt um landið í staðinn fyrir að byggja alltaf nýtt og nýtt á höfuðborgarsvæðinu, á suðvesturhorninu. Mesti ávinningur samfélagsins, mesti þjóðhagslegi ábatinn af því, er að nýta þær fjárfestingar og aðstöðu sem hefur komið hefur vítt og breitt um landið. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.