154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Evrópska efnahagssvæðið.

1076. mál
[16:32]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið. Þær þarf að gera vegna samnings milli EES og EFTA-ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs, og ESB um nýtt tímabil uppbyggingarsjóðs ESB, þ.e. tímabilið maí 2021 til apríl 2028. Jafnframt er með frumvarpinu lagt til að ríkisstjórninni verði heimilað að fullgilda þann samning.

Allt frá gildistöku EES-samningsins hafa EFTA-ríkin innan EES skuldbundið sig til að inna af hendi ákveðin framlög til að draga úr efnahagslegu og félagslegu ójafnvægi innan EES með það fyrir augum að auka samkeppnishæfni og efla viðskipta- og efnahagstengsl samningsaðila. Í þessum tilgangi var uppbyggingarsjóði EES, sem starfræktur er af EFTA-ríkjunum innan EES, komið á laggirnar. Annað meginmarkmið sjóðsins er að efla tvíhliða tengsl ríkjanna þriggja við viðtökuríkin. Samið hefur verið um þessi framlög til nokkurra ára í senn.

Uppbyggingarsjóðurinn skapar tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, frjáls félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefnum með samstarfsaðilum í viðtökuríkjunum. Íslensk stjórnvöld hafa í því sambandi lagt áherslu á verkefni á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar, orku- og umhverfismála, samfélagslegra umbóta og jafnréttismála. Samningaviðræðum við ESB um nýtt tímabil uppbyggingarsjóðsins lauk í nóvember á síðasta ári. Haft var samráð við utanríkismálanefnd Alþingis um niðurstöðu þeirra og voru þær samþykktar af ríkisstjórn fyrir áritun samningsins.

Í þeirri breytingu sem leiðir af samningnum felst að ný bókun verður tekin upp í EES-samninginn um uppbyggingarsjóð EES í stað eldri bókunar um sama efni. Í bókuninni eru ákvæði um heildarfjárframlag EFTA-ríkjanna í uppbyggingarsjóðinn á nýju sjóðstímabili, hver viðtökuríki sjóðsins skuli vera og um fyrirkomulag sjóðsins á tímabilinu sem hann nær yfir. Samkvæmt bókuninni skuli EFTA-ríkin greiða samtals 1.805 milljónir evra í uppbyggingarsjóðinn á sjóðstímabilinu. Til samanburðar námu umsamin framlög EES- og EFTA-ríkjanna rúmum 1,5 milljörðum evra á síðasta sjóðstímabili. Hækkunin á milli tímabila nemur 16,6%, sem er lægra en sem nemur verðlagshækkunum á evrusvæðinu frá því sem samið var um fyrir síðasta sjóðstímabil.

Innbyrðis skipting milli EES og EFTA-ríkjanna á framlögum til sjóðsins hverju sinni ræðst af hlutfalli hvers ríkis í samanlagðri landsframleiðslu þeirra og er því breytileg milli ára. Það er því ekki hægt að segja nákvæmlega til um það hvert heildarframlag Íslands verður á tímabilinu. Ef miðað er við núverandi greiðsluhlutfall Íslands og núverandi gengi evrunnar myndi framlag Íslands á sjóðstímabilinu nema um 1,7 milljörðum kr. á ári hverju á þessu sjö ára sjóðstímabili. Þá er miðað við að viðtökuríkið nái að nýta framlög til sjóðsins að fullu. Hins vegar sýnir reynslan að framlögin verða líklega ekki fullnýtt og munu greiðslur Íslands þá lækka sem því nemur.

Greiðslur til sjóðsins taka mið af framvindu verkefna sjóðsins og miðað við fyrri reynslu munu þær fyrst og fremst koma til á síðustu árum sjóðstímabilsins og á fyrstu árunum eftir lok þess. Gera má ráð fyrir því að árlegar greiðslur vegna tímabilsins muni ná hámarki á árinu 2027–2031. Samhliða viðræðum um nýtt tímabil uppbyggingarsjóðsins fóru fram viðræður um tímabundna tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir tilteknar sjávarafurðir inn á markað ESB. Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og matvælaráðuneytisins önnuðust þær viðræður og höfðu samráð við fulltrúa útflytjenda sjávarafurða. Talið er ljóst að þeir tollkvótar sem samið var um nú muni nýtast útflytjendum íslenskra sjávarafurða mun betur en þeir tollkvótar sem samið var um vegna síðasta sjóðstímabils. Þó að samningurinn um tollkvótana falli ekki undir það frumvarp sem nú er lagt fram eru þeir tengdir samningum um nýtt tímabil uppbyggingarsjóðsins og munu tollkvótarnir ekki koma til framkvæmda fyrr en samningurinn um uppbyggingarsjóðinn hefur verið fullgiltur. Af þeim sökum er brýnt vegna hagsmuna tengdra útflutningi sjávarafurða að Ísland hafi fyrir mitt þetta ár fullgilt báða samningana og gert viðeigandi lagabreytingar.

Að þessu sögðu er þó rétt að hér komi fram að efni samningsins hefur verið til umræðu milli framkvæmdastjórnar ESB og ráðs ESB., þ.e. aðildarríkja sambandsins. Þeirri umfjöllun hefur enn ekki verið lokið og samningurinn því ekki enn formlega undirritaður. Vonir standa til að samningurinn verði undirritaður á næstu vikum.

Virðulegi forseti. Ég legg til að þegar umræðu þessari lýkur verði frumvarpi þessu vísað til hv. utanríkismálanefndar.