154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

staðfesting rammasamkomulags milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum.

1104. mál
[16:38]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á rammasamkomulagi milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum, sem skrifað var undir fyrir Íslands hönd í Reykjavík 2023, ásamt þremur viðaukum.

Forsaga málsins er sú að árið 2022 sagði Ísland upp fyrra samkomulagi frá árinu 2018 vegna ágreinings við Noreg um breytingu á tvíhliða bókun ríkjanna. Í kjölfarið fóru fram samningafundir milli strandríkjanna. Í júní 2023 gekk Noregur frá samningaborðinu en í ljósi mikilvægis málsins héldu Ísland og Grænland áfram sem endaði með framangreindu samkomulagi. Í kjölfarið var Noregi boðið að ganga að samkomulaginu og óskaði Noregur eftir fresti til að gefa upp sína afstöðu. Það lá ekki fyrir fyrr en í apríl 2024 að Noregur hygðist ekki ganga að samkomulaginu vegna ágreinings um aðgang Noregs til veiða á sinni hlutdeild innan lögsögu Íslands.

Fyrra samkomulag gerði ráð fyrir að aflaheimildir Íslands næmu 80%, Grænlands 15% og Noregs 5%. Í ljósi minnkaðrar viðveru loðnu í lögsögu Jan Mayen en aukinnar í grænlenskri var samið um að hlutur Grænlands myndi vera 18% og hlutur Noregs færi niður í 1%. Jafnframt jókst hlutdeild Íslands í 81%. Samkomulagið staðfestir með formlegum hætti að ákvörðun heildarafla á hverri vertíð byggist á langtímanýtingarstefnu og hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið staðfest að sú stefna samræmist viðmiði um ábyrgar veiðar, sjálfbærni stofnsins og varúðarsjónarmiðum. Jafnframt var staðfest sú stefna strandríkjanna að stunda ekki ósjálfbærar sumarveiðar sem hafði verið á milli þeirra frá árinu 2015. Samstaðan hefur í för með sér að nær engin loðna er lengur veidd í lögsögu annarra ríkja en Íslands. Það hefur þannig ekki áhrif á nýtingu að eftir eigi að semja um aðgang Noregs til veiða á sinni hlutdeild innan lögsögu Íslands. Skilyrði fyrir tvíhliða aðgangi að fiskveiðilögsögu samningsaðila og tæknilegar takmarkanir koma fram í viðauka 2 við samkomulagið. Gert er ráð fyrir að samningsaðilar geti breytt efni viðauka á árlegum samráðsfundi ríkjanna um stofninn. Samkomulagið er ótímabundið en hægt er að segja því upp með einnar vertíðar fyrirvara. Síðustu vertíð lauk 15. apríl síðastliðinn og næsta hefst 15. október. Það er því nauðsynlegt að staðfesta samkomulagið hið fyrsta til að tryggja samfellu í samningum um loðnu.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.