154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

rekstur lögreglu á Íslandi.

[15:13]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef verið að kynna mér starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var þar í heimsókn fyrir örfáum dögum síðan og tók mér tíma til að setja mig inn í þessi helstu krefjandi verkefni. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að í almennu löggæslunni hér á höfuðborgarsvæðinu er gríðarlega mikið álag. Nú er spurt um það með hvaða hætti við sjáum þetta í ríkisstjórninni og hvernig það endurspeglist í fjármálaáætluninni. Ja, það hefur yfir langt skeið verið endurspeglað í sérstökum átaksmálum og frumkvæði ríkisstjórnarinnar í því að fjármagna verkefni innan almennu lögreglunnar og á rannsóknarsviðinu sem hafa þurft sérstaka fjármögnun og við höfum staðið með þeim orðum sem hafa fylgt t.d. stjórnarsáttmálum að halda úti öflugri löggæslu. Ég áttaði mig á því í þessari heimsókn sem ég fór í í síðustu viku að málefni hælisleitenda t.d. leggja miklar kröfur á lögregluna sem og aukinn fjöldi ferðamanna þannig að það er í mörg horn að líta (Forseti hringir.) þegar við þurfum að horfa til þess hvernig lögreglan getur best sinnt sínum störfum og (Forseti hringir.) síðan er hér fagráðherra sem verður að forgangsraða fjármunum í samræmi við vilja þingsins.

(Forseti (BÁ): Forseti biður hv. þingmenn og ráðherra að athuga að klukkan í púltinu er eitthvað vitlaus, en við fylgjumst með tímanum líka hér úr forsetastóli og gefum merki þegar ræðutíma er að ljúka.)