154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðbrögð lögreglu vegna mótmæla.

[15:15]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Þann 31. maí síðastliðinn fóru fram mótmæli fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar sem hindruðu för ráðherrabíla í stutta stund. Lögreglan beitti piparúða á mótmælendur án aðvörunar og eftir að ráðherrabílar voru farnir af staðnum. Efnt var til mótmælanna vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar í málefnum Palestínu og framkomu stjórnvalda við fólk á flótta frá Palestínu, en þar má nefna fyrirhugaða brottvísun 11 ára drengs með Duchenne-heilkennið sem teflir heilsu hans í óþarfa hættu. Þegar fjölmiðlar leituðu eftir viðbrögðum hæstv. dómsmálaráðherra vegna aðgerða lögreglu bar hún því við að lögreglan hefði brugðist rétt við í krefjandi aðstæðum. Fyrsta spurning mín til ráðherra er því hvort ráðherra hafi yfir höfuð farið ofan í kjölinn á því hvernig lögreglan beitti sér áður en hún felldi dóm um þetta opinberlega. Kannaði hún eitthvað málið eða er hún bara almennt á því að lögreglan bregðist rétt við í krefjandi aðstæðum?

Það sem vekur hins vegar öllu meiri áhyggjur hjá þeirri sem hér stendur er að hæstv. dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir, æðsti yfirmaður löggæslumála á Íslandi, lét hafa eftirfarandi ummæli eftir sér um skilning sinn á friðsömum mótmælum, með leyfi forseta:

„Ísland er lýðræðisríki og í lýðræðisríkjum virðum við rétt fólks til að tjá skoðanir sínar með friðsælum hætti. En um leið og farið er gegn skýrum fyrirmælum lögreglu þá eru mótmæli ekki lengur friðsamleg.“

Ég vil gefa hæstv. dómsmálaráðherra það að hún hreinlega viti ekki betur þegar hún lætur þessa vitleysu út úr sér og þar með gefa henni tækifæri á að leiðrétta þessa afskræmingu á rétti borgaranna til friðsamlegra mótmæla áður en lengra er haldið. Ég gef því ráðherra orðið.