154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðbrögð lögreglu vegna mótmæla.

[15:17]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil fyrst fá að nefna að ég lagði áherslu á það í ummælum mínum um helgina að Ísland er lýðræðisríki og í lýðræðisríkjum virðum við rétt fólks til tjáningar. Jú, það er rétt hjá hv. þingmanni að ég lét líka hafa það eftir mér að þegar fólk er hætt að virða tilmæli lögreglu þá hef ég þá skoðun og dreg það í efa að mótmæli séu þar með friðsamleg. Ef lögreglan hefði ekki verið á staðnum þennan föstudagsmorgun þá hefðu ráðherrar ekki komist á ríkisstjórnarfund né frá fundi. Það var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem stjórnaði aðgerðum á vettvangi og setti upp girðingar í samræmi við samþykkt verklag þar um. Búið var að boða til mótmæla. Þarna voru einstaklingar sem hindruðu för ráðherra til að mæta til ríkisstjórnarfundar, neituðu að færa sig þannig að fólk kæmist til fundar og neituðu ítrekað að hlýða fyrirmælum lögreglu. Þarna sköpuðust, eins og aðrir hafa orðið vitni að, krefjandi aðstæður fyrir lögreglu. Lögreglan starfar eftir mjög skýru verklagi og gerði það. Ég fagna því hins vegar að lögreglan hafði sjálf frumkvæði að því strax að loknum þessum atburði að vísa þessu atviki til nefndar um eftirlit með lögreglu og hefur sjálf kallað eftir því að öllu myndefni af staðnum, öllu myndefni úr búkmyndavélum lögreglunnar verði skilað og að skoðað verði ítarlega hvort lögreglan hafi brugðist rangt við.