viðbrögð lögreglu vegna mótmæla.
Virðulegur forseti. Ráðherra dómsmála á Íslandi, æðsti yfirmaður löggæslunnar á Íslandi, getur ekki bara leyft sér að hafa einhverja skoðun á því hvernig lýðræðið virkar og hvernig réttur fólks til að mótmæla virkar. Hún hlýtur að þurfa að vera upplýst um dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, dómaframkvæmd dómstóla á Íslandi sem segja ekki fyrir um að ef þú hreinlega óhlýðnast fyrirmælum lögreglu þá gefi það lögreglunni rétt til þess að beita piparúða eða öðru valdi eða þá að þar með teljist mótmælin allt í einu ekki lengur friðsamleg.
Síðan vil ég bara taka það fram að enginn þessara ráðherra, svo ég viti til, er fótbrotinn eins og sú sem hér stendur og það að ráðherrabílar gátu ekki komist leiðar sinnar í einhvern ákveðinn tíma réttlætir ekki þessa aðför lögreglu. Mér þykir miður að þurfa að upplýsa ráðherra dómsmála um mikilvægi þess að standa vörð um lýðræðislegan rétt borgaranna til að mótmæla. Þegar svona óhóflegu offorsi er beitt gagnvart mótmælendum (Forseti hringir.) fælir það fólk frá því að nýta sér réttinn til að mótmæla og það er alvarlegt. Ég hvet ráðherra til að kynna sér réttindi borgaranna betur. Það er alvarlegt að ráðherra dómsmála (Forseti hringir.) þekki ekki grundvallarmannréttindi betur en raun ber vitni.