ný örorkulífeyrislög og greiðslur til öryrkja.
Virðulegur forseti. Það virðist ekki skorta milljarða hjá þessari ríkisstjórn eða tugi milljarða í ýmis gæluverkefni, svo sem Snobbhill-ráðuneyti og önnur óþarfa verkefni, þá skortir ekki peningana. En á sama tíma er það hrein og klár aðför að öryrkjum og öldruðu fólki að neita þeim um hækkanir samkvæmt kjarasamningum upp á 23.750 kr. og það frá og með 1. febrúar síðastliðnum. Á sama tíma er það eina sparnaðarleiðin sem þessi ríkisstjórn sér fram á að sé hægt að fara, að spara 10–11 milljarða vegna endurskoðunar almannatryggingalaga fyrir öryrkja. Það er alveg með ólíkindum að við skulum vera með ríkisstjórn sem hefur enga aðra sparnaðarleið en að finna þá sem verst hafa það og standa verst og láta þá fá á baukinn. Ég er að fá símtöl, viðtöl, frá grátandi fólki algjörlega í örvæntingu sem spyr mig: Hvernig á ég að eiga fyrir mat? Hvernig á ég að eiga fyrir húsaleigu? Svo er fólk utan af landi að spyrja mig: Hvernig í ósköpunum á ég að komast til læknis í Reykjavík og borga fyrir það? Fram og til baka er það 500 km akstur vegna þess að það getur ekki flogið, það fær það ekki, það hefur ekki efni á því. Þetta er staðreynd. Þess vegna spyr ég hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Mun hann sjá til þess að þessir 10–11 miljarðar sem eiga að sparast núna í eitt og hálft ár verði hreinlega borgaðir út strax og mun hann sjá til þess að 23.750 kr. samkvæmt lögbundnum samningum sem eru afturvirkir frá 1. febrúar, verði greiddar til öryrkja og eldri borgara og aftur um næstu áramót? Þarna erum við að tala um 47.000 kr. sem er verið að svíkja þennan hóp um, þennan verst setta hóp sem er alltaf einhvern veginn breiðu bök ríkisstjórnarinnar, einhvern veginn má alltaf níðast á þeim.