ný örorkulífeyrislög og greiðslur til öryrkja .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hv. þingmaður vill meina að hér sé verið að ráðast í sparnaðaraðgerðir þar sem verið er að setja gildistöku nýrra örorkulífeyrislaga 1. september 2025. Nú höfum við rætt þetta áður hér í þingsal, ég og hv. þingmaður. Í fjármálaáætlun sem lögð var fram í fyrra, þ.e. núgildandi fjármálaáætlun, var gert ráð fyrir að gildistakan yrði 1. janúar 2025 en vegna þess að það einfaldlega tók lengri tíma að vinna frumvarpið og það mun taka tíma að koma frumvarpinu til framkvæmda, einfaldlega vegna þess að um allflókna kerfisbreytingu er að ræða, þá er ómögulegt annað en að frumvarpið taki gildi síðar en 1. janúar 2025. Mér finnst því ekki rétt að tala um að verið sé að spara á kostnað örorkulífeyrisþega þó svo að kostnaðurinn færist til. Þeir 18 milljarðar sem áætlaðir eru að komi nýir inn í þetta kerfi — 18 milljarðar — munu koma inn 1. september 2025. Þar með er ekki hægt að segja að það sé verið að spara fyrir þessu.
Mig langar síðan að nefna að í þeim kjarasamningum sem gerðir voru á hinum almenna vinnumarkaði kom ríkisstjórnin með ýmsar aðgerðir til stuðnings við þá samninga. Þær stuðningsaðgerðir nýtast mjög mörgu fólki í hópi örorkulífeyrisþega, ekki síst þeim sem eru á leigumarkaði og þeim sem eiga börn þar sem bæði húsaleigubætur hafa verið hækkaðar um 25% og barnabætur hafa verið hækkaðar umtalsvert, að ég tali nú ekki um það frumvarp sem núna liggur hér fyrir þinginu og snýr að skólamáltíðum sem mun nýtast barnafólki sérstaklega vel.