154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

ný örorkulífeyrislög og greiðslur til öryrkja .

[15:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem voru ansi rýr. Ég bara spyr hann: Hvernig í ósköpunum getur hann komið hérna upp og sagt að það eigi ekki að láta almannatryggingaþega, verst setta fólkið í landinu, fá 23.700 kr. hækkun afturvirkt frá 1. febrúar? Hvernig í ósköpunum getur ríkisstjórnin sagt við þennan eina hóp að hann eigi alls ekki að fá hækkun? Og húsaleigubætur — þú kaupir ekki mat fyrir húsaleigubætur. Hækkunin er ekki einu sinni nóg til að standa undir leigu. Allt sem hann taldi hér upp; þetta fólk kaupir ekki lyf, kaupir ekki mat og fer ekki til læknis fyrir það. Það gerir það fyrir beinharða peninga. Á sama tíma vil ég benda honum á að frá því að samið var við eldri borgara á sínum tíma, af ríkisstjórn þess tíma, er sparnaður ríkisins að nálgast 100 milljarða, bara af því sem menn spara sér við að semja ekki við öryrkjana eins og var gert við eldri borgara. (Forseti hringir.) Það er okkur til háborinnar skammar að það eigi enn einu sinni að fresta því.