154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

ný örorkulífeyrislög og greiðslur til öryrkja .

[15:37]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil minna hv. þingmann á það að bætur almannatrygginga hækkuðu um síðustu áramót. Ég vil líka benda hv. þingmanni á það að þær kerfisbreytingar sem við erum að ráðast í núna, sem endurspeglast í því frumvarpi sem ég lagði hér fram á Alþingi fyrir páskana og er í hv. velferðarnefnd hvar hv. þingmaður situr, eru auðvitað þær mestu kjarabætur sem hafa verið gerðar fyrir öryrkja á Íslandi í langan, langan tíma og munu draga úr fátækt þessa hóps. Þess vegna hvet ég hv. þingmann eindregið til að styðja það mál, enda veit hv. þingmaður að í því máli felast mikilvægar kjarabætur, mikilvægar kerfislægar bætur og umbætur á kerfinu í heild sinni. Þannig að ekki bara mun þessi breyting bæta kjör örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega heldur erum við að búa til kerfi til framtíðar þar sem hægt verður að halda áfram í þeirri vegferð að gera betur við þennan hóp.