154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

úrræði varðandi húsnæði og lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík .

[15:40]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Já, það er rétt, ég og félagsmálaráðherra, ásamt með fjármálaráðherra, áttum fund með fulltrúum fyrirtækjanna. Það var gagnlegur fundur fyrir mitt leyti. Þeir sem sátu fundinn verða auðvitað líka að dæma hver fyrir sig hvernig niðurstaða fundarins varð en þetta var gott tækifæri til að skýra þau úrræði og hvaða hugsun liggur að baki þeim úrræðum sem ríkisstjórnin hefur kynnt. Nú er það svo að sum þessara úrræða munu koma fyrir þingið og þar með fara í umsagnarferli og geta eftir atvikum verið mótuð af þinginu eftir því sem ástæða þykir til.

Rauði þráðurinn í öllu því sem stjórnvöld hafa verið að gera vegna málefna Grindavíkur er að senda þau skilaboð að við viljum standa með Grindvíkingum. Við viljum standa með samfélaginu í Grindavík, þar með talið þeim sem eru þar með atvinnurekstur. Við getum ekki orðið við hverri ósk og leyst hvers manns vanda vegna þess að þetta eru ákveðnar hamfarir sem eru að eiga sér stað en við forgangsröðuðum fyrstu aðgerðum okkar í þágu heimilanna. Það var risastór aðgerð sem á sér engin fordæmi að við skyldum hafa keypt upp allt húsnæði þar sem fólk hafði lögheimili í Grindavík og ég tel að þó að það hafi orðið tímafrek aðgerð hafi hún skilað tilætluðum árangri.

Síðan höfum við reist varnarmannvirki og við höfum verið að reyna að laga innviði. Nú síðast fóru því miður háspennulínurnar niður, sem nýlega höfðu verið reistar, en það hefur verið krefjandi að halda innviðum gangandi vegna þess að hamfarir hafa haldið áfram. Reyndar var það svo dramatískt að á meðan á fundi okkar stóð opnaðist jörðin að nýju og hraun tók að renna.

Mér fannst fundurinn vera gott tækifæri til að útskýra aðgerðir og t.d. stuðningslánin, sem ég get kannski komið aðeins betur inn á hér á eftir, lán með ríkisábyrgð. Ég tel að það hafi komið í ljós á fundinum að fleiri myndu mögulega geta nýtt það úrræði heldur en höfðu gert sér grein fyrir því áður. Það er þá hugsað þannig að það séu ekki eingöngu þeir sem áttu fasteignir (Forseti hringir.) eða trygg veð sem hurfu vegna hamfaranna heldur að allir eigi að geta á jafnréttisgrundvelli fengið þann stuðning.