154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

úrræði varðandi húsnæði og lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík .

[15:44]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Já, það er rétt að stuðningslán með ríkisábyrgð er frumvarp sem er í smíðum og við gerum ráð fyrir að komi til þingsins strax í haust. Þá eru einmitt að renna út úrræði eins og launastuðningurinn sem við höfum boðað að verði ekki framlengdur lengur en fram á haustið. Varðandi þessar íbúðir þá er það rétt að við höfum verið og þingið tók ákvörðun um að takmarka uppkaup á húsnæði við þá sem höfðu búið og haft lögheimili í viðkomandi íbúð. Með því að mörkin voru dregin þar þá eru einhverjir sem eru fyrir utan. Ég vil bara segja og minna á að við höfum verið að greiða laun fyrir fyrirtæki vegna þeirra starfsmanna sem ekki geta sótt vinnu vegna hamfaranna. Við höfum líka verið með sérstaka styrki til þeirra sem hafa orðið fyrir áföllum og ætlum áfram að vera með slíka styrki sem eru m.a. tengdir því að tekjutap á sér stað. Við erum síðan búin að kaupa upp þessar eignir, eins og ég hef rakið, og erum að undirbúa úrræði sem felur í sér möguleikann á því (Forseti hringir.) að fara til fjármálastofnana sem eiga auðvitað líka að standa með fyrirtækjum og einstaklingum í Grindavík sem ella myndu ekki geta fengið lán en gætu fengið það fyrir þá ríkisábyrgð sem við erum tilbúin til að bjóða. Það er úrræði sem kæmi fram í haust.