154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

endurskoðun og samgöngusáttmála og kostnaðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga.

[15:45]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil beina fyrirspurn minni til hæstv. innviðaráðherra. Það voru mikil tímamót á sínum tíma þegar samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður af ríkinu og sveitarfélögunum sex hér á svæðinu árið 2019. Þar var yfirskriftin Nýir tímar í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem áhersla var á fjölbreytta samgöngumáta. Nú hefur auðvitað fjölmargt verið gert og má þar nefna hinar ýmsu stofnvegaframkvæmdir. Ég ætla að leyfa mér að taka sérstaklega Kaldárselsveg að Krýsuvík á Reykjanesbraut sem dæmi en það er auðvitað um fleiri framkvæmdir að ræða. Við þetta má auðvitað bæta fjölmörgum hjólreiðastígum. En þetta er bara eitt. Svo er það auðvitað stór framkvæmd sem ég fullyrði að sé ein sú mikilvægasta á höfuðborgarsvæðinu en það er Álftanesvegur– Lækjargata hjá Reykjanesbraut. Þetta er vegur sem við þekkjum öll og umferðin hefur margfaldast með auknum ferðamannastraumi t.d., sérstaklega um Hafnarfjörð. Þetta auðvitað hangir saman við aðrar mikilvægar framkvæmdir í sáttmálanum eins og við þekkjum.

En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um nokkur atriði og það er í fyrsta lagi: Hvernig miðar endurskoðun á sáttmálanum? Má búast við einhverri kúvendingu á því samkomulagi sem gert var á sínum tíma? Svo er það þetta með kostnaðarskiptinguna eilífu á milli ríkis og sveitarfélaga. Hvernig miðar þeirri vinnu og er ráðherra farinn að sjá til lands hvað það varðar?

Að lokum langar mig að teygja mig aðeins yfir í loftslagsmálin og tengja við samgöngusáttmálann og tækifærin sem þar eru til staðar. Sér ráðherra fyrir sér einhverja aukna aðkomu ríkisins eða aukinn stuðning til sveitarfélaga þegar kemur að rekstri almenningssamgangna, hvort sem það er til að auka þjónustuna með beinu framlagi beint inn í rekstur byggðasamlagsins eða t.d. með því að styðja við það verkefni að flotinn sé knúinn öðrum orkugjöfum en dísil og bensíni?