154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

endurskoðun og samgöngusáttmála og kostnaðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga.

[15:47]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Fyrst af öllu vil ég segja að ég legg mikla áherslu á þessi mál. Samgöngusáttmálinn sem hv. þingmaður vísar til er lykilatriði í því að stórefla almenningssamgöngur og bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta á höfuðborgarsvæðinu og þar með í landinu. Markmiðið er að stuðla að auknum lífsgæðum á svæðinu öllu með uppbyggingu samgönguinnviða sem eru skilvirkir, hagkvæmir, öruggir og umhverfisvænir en ekki síður að stuðla að því að ná loftslagsmarkmiðum um sjálfbært kolefnislaust borgarsamfélag. Þá er rétt að nefna líka tækifæri með orkuskiptum í almenningssamgöngum sem hv. þingmaður snerti aðeins á í sinni fyrirspurn. Samkomulagið sem var undirritað árið 2019 lagði í raun og veru grundvöll að algjörum kaflaskilum. Ýmis framfaraskref hafa þegar verið stigin, eins og til að mynda þau að lagðir hafa verið rúmlega 9 km af hjólastígum og 3,5 km eru nú í framkvæmdaferli og ýmsar samgöngur á svæðinu hafa þegar batnað og orðið greiðari.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um endurskoðunina og endurskoðun stendur yfir og er á lokametrunum. Stefnt er að því að klára það sem allra fyrst og ég legg mikla áherslu á það, fundaði raunar um þetta síðast í morgun. Um kostnaðarskiptinguna vil ég segja að hún er hluti af endurskoðuninni og við þá vinnu er litið bæði til beinna framlaga ríkis og sveitarfélaga og væntra framlaga að þróun Keldnalands og annarra fjármögnunarleiða. Samhliða þessari endurskoðun þarf að skýra rekstrarhlið almenningssamgangna á svæðinu, þ.e. borgarlínu, og aðkomu ríkisins að því. Ég vil líka nefna í því samhengi að það er mjög mikilvægt að orkuskipti eigi sér stað í almenningssamgöngum og ég mun beita mér sérstaklega fyrir því að við getum tekið skref í þá átt.