viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegur forseti. Ég er fullmeðvituð um að þegar mál er komið í 2. umræðu þá er það á forræði nefndarinnar en þess ber þó að geta að t.d. þegar kemur að ÍL-sjóðsmálinu þá stendur ekki til að gera nokkra einustu breytingu á því þannig að málið er bara nákvæmlega eins og það kom af kúnni. Mér finnst í ljósi eðlis þessa máls og umfangs þess og mögulegum áhrifamætti þess á ríkisstjórnir, ekki bara næstu heldur þarnæstu og þá á eftir o.s.frv., bara sjálfsögð krafa að við fáum að kalla eftir því að fjármálaráðherra sé viðstaddur umræðu um þetta mál og sé tilbúinn að taka þátt í samræðum við okkur um það. Maðurinn er líka raunar þingmaður og getur þar af leiðandi tekið þátt í umræðum um þingmál. En það mikilvægasta við þetta er að þetta eru stór og umfangsmikil mál og við fórum fram á það að fjármálaráðherra yrði á staðnum. Hæstv. forseti getur líka stundum komið til móts við þingmenn sem vilja fá að eiga orðastað við ráðherra (Forseti hringir.) en ekki bara ráðherra sem vilja fá að vera einhvers staðar í útlöndum þegar málin þeirra eru rædd.