viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram. Það er sjálfsögð krafa að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sé hér viðstaddur þegar við erum að taka til umræðu slík mál, svo umdeild mál sem þessi tvö mál eru sem eru á dagskrá hér í dag. Og, forseti, það hefur margoft komið fyrir hér í þessum þingsal að kallað hefur verið eftir því að ráðherrar væru við 2. umræðu og 3. umræðu mála og það hefur oft komið fyrir að ráðherrar hafi hætt við utanlandsferðir til þess að sýna einmitt þinginu virðingu og taka þátt í umræðum og svara spurningum. Það er sjálfsögð krafa, forseti. Ég undrast það að þessi dagskrá hafi verið sett svona upp ef forseti hefur vitað það að fjármála- og efnahagsráðherra yrði erlendis þessa daga sem gert er ráð fyrir að málin séu til umræðu.