154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[15:56]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil taka heils hugar undir með þeim þingmönnum sem hafa bent á þessa sjálfsögðu og eðlilegu kröfu, að hæstv. ráðherra taki það að sér að vera viðstaddur þessa umræðu í öðru eins mikilvægu máli. Ég vil leggja áherslu á það að við hér, alla vega í stjórnarandstöðunni, það verður ekki upp á okkur klagað að við séum ekki „klar, parat“ og til staðar til að eiga í orðaskiptum um einstök mál. Þetta nær alla leið niður í boðun á nefndarfundi þar sem virðist bara ekki vera steinn yfir steini. Fundir eru boðaðir með skömmum fyrirvara og felldir niður með jafnvel enn skemmri fyrirvara án þess að fáist nokkur einustu svör. Og það eru mjög stór og mikilvæg mál sem eru hér til meðferðar, mál sem við viljum gjarnan að séu kláruð á þann hátt að öll svör komist til skila. Það er það sem við erum að biðja um.