154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[15:57]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það á bara að vera sjálfsagt mál að fjármálaráðherra sé viðstaddur þessa umræðu, sérstaklega varðandi sölu Íslandsbanka, svona í von um að geta byrgt brunninn svo að hann detti ekki ofan í sama pyttinn og sá ráðherra lenti í sem seldi síðast með eintómu klúðri, eins og maður segir, klúðraði málinu alveg upp fyrir haus. Það á að vera eðlilegt að hann sé hér og hlusti á þá umræðu og ég vona að þá geti hann kannski eitthvað lært og áttað sig á því að hann eigi möguleika á að fara í þá sölu án þess að klúðra henni, sem ég efast stórlega um. En það væri þó alla vega bragur á því að hafa hann við þá umræðu og það er bara sjálfsagt, hann ætti að vera hérna til þess að átta sig á því hversu alvarlegt málið var og hversu alvarlega því var klúðrað síðast.