154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[15:59]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég vona að herra forseti hætti að detta sífellt í þennan pytt, að vísa í einhverjar formreglur þegar það er ekkert sem meinar það að orðið sé við þessu. Ég minni á að hæstv. fjármálaráðherra er auðvitað ekki bara ráðherra. Hann er nefnilega líka formaður Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn sátu í ríkisstjórn frá 1995 til 1997. Íbúðalánasjóður var stofnaður 1998. Fingraför Framsóknarflokksins á þessu máli eru veruleg og það er bara eðlilegt að formaður flokksins, þingmaður og ráðherra, komi og verði hér við umræðuna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)