154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:00]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að koma upp og taka þátt í þessum umræðum varðandi viðveru hæstv. fjármálaráðherra. Ég heyrði þessa ósk fyrst í morgun sem kom fram á fundi með forseta og öðrum þingflokksformönnum. Ég skil hana mætavel og þekkjandi hæstv. fjármálaráðherra held ég að það stæði ekki á honum að sitja hér og hlusta á þessar umræður en líkt og forseti hefur tekið fram er málið auðvitað komið frá ráðuneytinu til þingsins og er í höndum þingsins eins og er. En við getum líka þakkað fyrir það að tæknin er til staðar og þrátt fyrir að hæstv. fjármálaráðherra sé upptekinn við störf erlendis eins og staðan er núna þá getur hann vonandi fylgst með þessu og við upplýst hann um umræðuna sem á sér stað hér. Þetta er mikilvæg umræða og ég vona að við höldum settu striki með dagskrána í dag.