viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Ég ætla að koma hingað og taka undir þessa ósk sem er auðvitað í hæsta máta eðlileg, að fjármálaráðherra sé a.m.k. að fylgjast með og helst að taka þátt í umræðu um þetta galna mál, sem flokkur hans ber ekki hvað síst ábyrgð á að er nú komið til kasta þingsins og eingöngu er spurt um hversu mikinn skaða almenningur ber af og hvaða hlutar almennings, en ekki eingöngu það heldur, eins og bent hefur verið á, er hann ekki búinn að taka til máls. Hann hefur ekki rætt þetta mál vegna þess að nýjasti stólaleikurinn hafði ekki átt sér stað þegar málið kom til kasta þingsins í 1. umræðu. Þegar öll stjórnarandstaðan er sammála um þetta og hv. þm. Ingibjörg Isaksen kemur hér fram og bendir réttilega á að fjármálaráðherra sé staddur erlendis í vinnu en hún skilji þessa ósk þá veltir maður fyrir sér: Er forseti Alþingis sá eini sem skilur ekki þessa ósk? Af hverju er þessu ekki breytt? Það eru hæg heimatökin. Og þó að ósk okkar hafi ekki komið fram fyrr en í morgun þá er svarið við því býsna einfalt: Við vissum ekki af utanlandsferð fjármálaráðherra í morgun en það vissi stjórnarmeirihlutinn.