154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er alveg hápólitískt mál og það er kannski sérstaklega í þessum stóru pólitísku málum sem er alveg eðlilegt að ráðherrarnir fylgi ríkisstjórnarmálum aðeins í gegnum þingið. Já, það er rétt að málið er komið til þingsins en á sama tíma verðum við að viðurkenna að aðskilnaður löggjafarvalds og framkvæmdarvalds er ekkert stundaður eins og hann ætti svo sem að vera. Ráðherrarnir eru hérna úr liði þingmanna inni í framkvæmdarvaldinu, þeir eru þingmenn hérna líka. Eins og staðan er í dag þá ráða formenn rosalega miklu um það hvað gerist hérna í þingsal þegar allt kemur til alls þannig að það er mjög eðlilegt að í svona stórpólitískum málum séu það formennirnir og ráðherrarnir sem fylgi þeim aðeins eftir og svari spurningum. Þetta er mál sem varðar hundruð milljarða króna, kostnaður eða hagnaður (Forseti hringir.) jafnvel til eða frá upp á tugi milljarða. Þetta er ekkert lítið mál.