154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:06]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég hélt satt best að segja að það væri bara búið að taka þetta mál út af dagskrá. Þegar þetta var kynnt upphaflega í október 2022 af þáverandi ráðherra þá mætti það mikilli andstöðu og síðan hafa setið tveir fjármálaráðherrar, annar kynnti málið og hinn hefur ekkert um það sagt. Við erum að ræða hér tvö hápólitískt mál en að mínu mati er ÍL-sjóðsmálið miklu alvarlegra. Þar er verið hreinlega að ræða um það að færa skuldir ríkissjóðs yfir á einstaklinga sem eiga réttindi í lífeyrissjóðum. Við ætlum að fara að ástunda kennitöluflakk með lagasetningu hér og mér finnst eðlilegt og sjálfsagt að þeir flokkar sem stóðu fyrir þessu (Forseti hringir.) á sínum tíma taki þátt í umræðunni og að forsvarsmenn þeirra flokka séu hér á staðnum.