viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegur forseti. Hér er um risamál að ræða og það að fjármálaráðherra sé viðstaddur umræðuna er bara nokkuð sem Alþingi ber að gera kröfu til. Ríkið þyrfti að leggja sjóðnum til 450 milljarða kr. til að standa við eftirstöðvar og skuldbindingar sjóðsins. Útgjöld ríkissjóðs eru 1.500 milljarðar á ári. Þegar við erum að leggja fram frumvarp um slit vegna ógjaldfærra opinberra aðila þá skulum við spyrja okkur að því: Getur ríkisstjórnin farið á hausinn? Nei, hún getur það ekki. Í lögum um gjaldþrotaskipti, eins og kemur fram í 5. gr. frumvarpsins, segir að ekki sé hægt að veita opinberum aðilum skuldaskilameðferð. Þeir geta ekki fengið nauðasamning, þeir geta ekki fengið greiðslustöðvun, þeir geta ekki farið í gjaldþrotaskipti þegar ríkið ber ábyrgð. Það er alveg kristaltært að ríkið ber ábyrgð á þeim skuldabréfum sem hér eru undir, einfalda ábyrgð. (Forseti hringir.) Það að fjármálaráðherra Framsóknarflokksins sé ekki hér við umræðu um þetta mál, (Forseti hringir.) það bara gengur ekki. Það verður að taka þetta mál af dagskrá og setja það á dagskrá þegar ráðherrann er til staðar.