154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er kannski óvenjulegt að við séum að kalla eftir ráðherra við 2. umræðu máls en það endurspeglar þá óvenjulegu stöðu að ríkisstjórnin lítur á fjármálaráðuneytið sem einhvers konar skiptimynt. Hér erum við því með þriðja ráðherra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu á þessum eina vetri, óstjórnin er slík. Þess vegna er mjög eðlilegt að ráðherra Framsóknarflokksins mæti í salinn og geri grein fyrir sinni afstöðu til málsins. Þegar þingflokksformaður Framsóknarflokksins stígur í pontu og segir að það standi ekki á þeim ráðherra þá stendur bara víst á honum, annars væri hann hér í sal þegar málið er tekið á dagskrá vegna þess að forseti setur dagskrána væntanlega í samráði við samstarfsflokkana í ríkisstjórn. Það stendur á fjármála- og efnahagsráðherra að vera hér í salnum. Ef eitthvað er að marka það sem þingflokksformaður Framsóknar segir, að hann myndi boðinn og búinn vilja vera hér í salnum, (Forseti hringir.) þá myndi þingflokksformaður einfaldlega biðja forseta um að fresta þessari umræðu þangað til ráðherra getur séð sér fært að vera hér í salnum. (Forseti hringir.) En nei, mögulega finnst Sigurði Inga Jóhannssyni þægilegra að fela sig í útlöndum meðan við ræðum timburmenn kosningaloforða Framsóknar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)