viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegi forseti. Mig langar bara til að hvetja hv. þingmenn til að kynna sér málið frá grunni, þó svo að við séum ekki að ræða það hér í fundarstjórn forseta, við getum gert það á eftir. Það er afar mikilvægt að þingmenn átti sig á því hvað það var sem Framsókn lagði fram, sem var 90% íbúðalán Íbúðalánasjóðs, og síðan það sem bankarnir gerðu og fylgdi á eftir með og kynni sér tölurnar, hvað það var sem Íbúðalánasjóður í rauninni lánaði út og hvað það var sem bankarnir lánuðu út þannig að þau sjái svart á hvítu hvernig hlutirnir voru og fari með rétt mál hér. En bara svo því sé svarað þá þurfa hv. þingmenn ekki hafa áhyggjur. Hér situr hæstv. ráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir, sem í rauninni er skipuð á meðan formaðurinn okkar er erlendis í vinnuferð, og hún mun geta svarað öllum spurningum ef þannig ber undir og mun fylgjast með umræðunni fyrir okkar hönd ásamt okkur þingmönnum.