154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:13]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Þetta er einföld beiðni um það að ráðherra sé hér inni þegar verið er að ræða mjög stórt og mikilvægt mál. Það er ekki í fyrsta skipti sem um slíkt er beðið og heldur ekki mjög óvanalegt að við því sé orðið. Það er meira að segja þannig að hér sitja stundum hæstv. ráðherrar við 2. umræðu án þess að vera kveðnir sérstaklega af forseta til þess að mæta. En það er greinilega einhver titringur með þetta mál innan ríkisstjórnarflokkanna fyrst það þarf að keyra það í gegn í dag í stað þess að það dragist um einn eða tvo sólarhringa svo við getum fengið afstöðu núverandi hæstv. fjármálaráðherra til þessa mikilvæga máls sem er óbreytt (Forseti hringir.) frá því að forveri hans lagði það hingað inn. (Forseti hringir.) Er það ekki bara mjög góð beiðni um fundarstjórn til hæstv. forseta?