viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegur forseti. Mig langar að hvetja stjórnarandstöðuna aðeins til að hugsa þessa kröfu til enda. Við viljum ekkert vera með ráðherraræði hérna. [Hlátur í þingsal.] Hlæið þið og kallið svo eftir hæstv. ráðherra í þessa umræðu? Treystum við okkur ekki sem þingmenn til að taka umræðuna um þetta mál? (Gripið fram í.) Já, já, hæstv. ráðherra er líka þingmaður. En það er auðvitað þannig að þegar ráðherrar eru búnir að skila málum hingað inn í þingið þá tekur þingið við verkefninu, fjallar um það í nefnd og kemur því í gegnum 2. og 3. umræðu.
En svona í ljósi þess að ég er komin hér upp til að ræða fundarstjórn forseta og við eigum að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu þá verð ég að minna á ósvaraðar fyrirspurnir. Mín elsta er til að mynda frá 9. október til hæstv. velferðarráðherra, það hefur ekki borist svar, og síðast áðan var ég að fá tilkynningu í svona tíunda eða tuttugasta skipti um að það væri ekki hægt að svara fyrirspurn minni. Þannig að ég myndi miklu frekar vilja, hæstv. forseti, að hann beini þeim tilmælum til ráðherra að þeir svari fyrirspurnum þingmanna, en við sem þingmenn skulum bara taka umræðu sem er hér á vettvangi þingsins.