viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Þetta er svo sem ekki ný staða. Við erum vön því að vera hér og glíma við hin stærstu mál ráðherranna án þess að þeir séu viðstaddir. Hér kemur hv. þm. Ingibjörg Isaksen og talar um að þetta sé ekki svart/hvítt og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talar um að við séum með einhverja taktík um ráðherraræði. Ég veit ekki betur en hér ríki ráðherraeinræði þannig að það er alveg með stórfurðulegum eindæmum að ráðherra skuli ekki þykja ástæða til að taka þátt með okkur í þessum risavöxnu málum sem liggja fyrir þinginu í dag, annars vegar ÍL-sjóður og hins vegar sala á Íslandsbanka. Það er engin samstaða um þessi mál og hvoru tveggja þessi mál eiga skilið að hafa þennan blessaða ráðherra viðstaddan. Þetta væri kannski afsökunarvert ef hann væri kófsveittur heima hjá sér að svara öllum þeim fyrirspurnum sem ítrekað er beðið um tímafresti á að svara okkur hér í þinginu, en hann er það ekki. Hann var að opna fyrir þrem dögum einn morguninn í kauphöllinni í London, (Forseti hringir.) frábært hjá honum. Svo er líka miklu meira um vert að vera einhvers staðar með fjármálaráðherrum Norðurlandanna heldur en að vera hér heima og sinna því sem honum ber að gera.