154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:18]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég ætlaði ekkert að koma upp en núna fann ég mig bara knúna til þess. Mér finnst þetta svo skondin nálgun að koma hingað upp og tala um ráðherraræði, að við séum að kalla eftir einhverju ráðherraræði með því að biðja ráðherra um að taka þátt í umræðu um mjög umdeilt og mikilvægt og stórt mál og þegar það hefur sérstaklega komið fram að sá ráðherra sem er fjármálaráðherra í dag mælti ekki fyrir þessu máli. Það var annar fjármálaráðherra sem mælti fyrir þessu máli hér í þinginu. Núverandi fjármálaráðherra hefur bara aldrei komið inn í þingsal og sagt eitt eða neitt um þetta mál þannig að það er kannski eðlilegast í heimi að kalla eftir sjónarmiðum þess ráðherra sem er fjármálaráðherra í dag. Ég veit að það er búið að vera mikið hringl á þessum ráðherrum en þetta er bara eðlileg krafa í ljósi ástandsins. Og það að kalla eftir ráðherra sem er erlendis, að það sé einhvern veginn bara fyrir neðan allar hellur — ég veit ekki betur en að það hafi ekki verið vitað að hann væri erlendis þegar það var kallað eftir þessu í morgun. Svo kom í ljós að hann er erlendis. (Gripið fram í.) Já, við erum að biðja um að málinu sé frestað í einn dag. Ráðherra kemur heim á morgun. Einn dagur. Það væri nóg til að koma til móts við þessa (Forseti hringir.) eðlilegu og sjálfsögðu kröfu án þess að vera að kalla hérna og saka okkur um að við viljum ráðherraræði eða við séum eitthvað ömurleg að vera að kalla eftir ráðherra (Forseti hringir.) Þetta er einn dagur, forseti. Það er ekkert mál að koma til móts við okkur.