viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegi forseti. Kannski þurfum við bara að búa til dagatal sem við höfum öll aðgang að, ferðadagatal ráðherra, svo hægt sé að setja dagskrána rétt saman og við vitum hvenær við eigum ekki að vera að spyrja um viðkomandi ráðherra. En mig langaði bara að fylgja eftir orðum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur og ýta aðeins á eftir þessum blessuðu hæstv. ráðherrum að svara fyrirspurnum. Ég á eina 75 daga gamla til heilbrigðisráðherra, ég á eina 38 daga — æ, nei, hann er erlendis — til hæstv. fjármálaráðherra og ef hæstv. innviðaráðherra er í herberginu þá á ég eina 37 daga. Ég ætla ekki að byrja alveg strax að ýta á eftir þessari 12 daga sem er til hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, enda er hún upptekin við að halda uppi fjármálaráðuneytinu.