154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.

[16:21]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta endurspeglar þessa furðulegu sögu þessarar ríkisstjórnar um ráðherrakapalinn hjá þeim. Þetta eru tvö mál sem við erum að tala um. Hvorugu málinu kom viðkomandi ráðherra, fjármálaráðherra, að og staðgengill hans ekki heldur. Þau hafa hvorugt tjáð sig um þessi mál. Maður hefur ekki hugmynd um afstöðu þeirra til málanna, nema tilgangurinn sé að það eigi ekkert að ræða um málið og þar af leiðandi eigi þessi mál, sérstaklega Íslandsbankasalan, að fara bara í nákvæmlega sama farveg og það fór í síðast; í tómt klúður. Það væri gaman að heyra í núverandi fjármálaráðherra, sem hefur aldrei tjáð sig um þetta, hvernig hann ætlar að standa að þessari sölu, hvort hann sé búinn að læra af mistökum forvera síns, eða ætlar hann að feta í fótspor hans? Þetta ætti bara að vera sjálfsagt, það ætti að vera sjálfsagt mál að hann kæmi hérna og ræddi þetta.