viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Það var bara ein spurning sem ég ætla að beina til herra forseta: Er hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra Lilja Dögg sitjandi fjármálaráðherra í dag? Það er eiginlega það sem mig langar að vita. Því að ef svo er getur hún náttúrlega alveg augljóslega setið hérna með okkur eins og enginn sé morgundagurinn, en ég vissi ekki að við værum með þetta eitthvað sambærilegt eins og þegar forsetinn fer af landi brott og hér eru handhafar forsetavalds. Þannig að ég vil bara fá það skýrt, herra forseti: Er Lilja Dögg Alfreðsdóttir sitjandi fjármálaráðherra hér í dag?