viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Stjórnarandstaðan hefur farið afskaplega sparlega með beiðnir um að ráðherrar sitji hér í þingsal þegar verið er að ræða þingmál. Eins og forseti veit hefur þetta nokkrum sinnum gerst og oftar en ekki hafa ráðherrar orðið við því að sitja í þingsal og taka þátt í umræðunni þegar við höfum kallað eftir því og einkum þegar stjórnarandstaðan talar einum rómi eins og gert er núna. Hér er ekkert venjulegt mál á ferðinni. Hér er verið að tala um að þetta þing samþykki það að fólk sem þarf að treysta á lífeyrisgreiðslur greiði fyrir hagstjórnarmistök Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Það er eðlilegt að við köllum hér til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, formann Framsóknarflokksins, sem var ekki sá ráðherra sem mælti fyrir málinu, og (Forseti hringir.) fáum hans sjónarmið. Það er nauðsynlegt, forseti, og ég trúi ekki öðru (Forseti hringir.) en að forseti hlusti á þetta ákall stjórnarandstöðunnar sem talar einu máli í þessu.