viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Herra forseti. Það eru dæmi þess að ráðherrar hafi hætt við utanlandsferðir eða breytt plönum sínum til þess einmitt að geta tekið þátt í samtali við þingmenn hér um umdeild mál. Við erum ekki, a.m.k. ekki sú sem hér stendur og þingflokkur hennar, að gera þá kröfu heldur höfum við óskað eftir því að forseti færi málið þannig að núverandi fjármálaráðherra eigi þess kost að taka þátt í umræðunum. Ég ætla, með leyfi forseta, að lesa upp úr ræðu þingmanns frá því fyrir nokkrum árum:
„En þegar það er grundvallarágreiningur milli óbreyttra þingmanna og framkvæmdarvaldsins, ráðherranna, hlýtur að vera æskilegt að þeir tækju þátt í þessari umræðu …“
Hér er ég hjartanlega sammála formanni Framsóknarflokksins, Sigurði Inga Jóhannssyni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)