viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegur forseti. Ég ítreka það að hér stend ég og get ekki annað og vil svo sannarlega taka þátt og mun taka þátt í þeim umræðum sem liggja fyrir dagskrá þingsins. Við erum hér ríkisstjórnin og gegnum hvert fyrir annað þegar ráðherrar þurfa að sinna störfum erlendis og ég hefði haldið að flestir þingmenn hefðu skilning á því. Við sem ríkisstjórn höfum auðvitað margoft farið yfir þau mál sem hér hafa verið nefnd og varðandi þá málaflokka og hvernig við ætlum að fara yfir það sem gerðist hér á árunum 2005, myndi ég segja, til ársins mögulega 2009 og 2010 varðandi hagstjórnarmistök, ég er til í að ræða það hvenær sem er.