viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Virðulegur forseti. Ég átta mig alveg á því og skil það vel að þegar málið er komið til nefndar og búið að skipa framsögumann á málinu þá flytji sá hinn sami málið hér í þingsal í framhaldinu. En við erum að ræða hér grundvallarmál, algjört prinsippmál sem þarfnast þess í raun og veru að sá ráðherra sem fer með þennan málaflokk sé til staðar. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson benti á það að komi til þess að Íbúðalánasjóði verði slitið þá falla á eindaga skuldir upp á rúma 700 milljarða. Og hvernig á að vinna úr því? Þetta eru hálf fjárlög. Er það bara eitthvað sem við getum verið að dúlla við hérna inni í sal? Það er verið að setja samfélagið, það er verið að setja ríkissjóð, það er verið að setja íslenskan fjármálamarkað (Forseti hringir.) í algjöra upplausn. Það að ráðherrar skuli við þessar aðstæður (Forseti hringir.) fara úr landi, þegar svona mál eru á dagskrá, er mér algerlega óskiljanlegt.