viðvera fjármálaráðherra við umræðu mála.
Forseti. Ég verð bara að segja að ég er mjög undrandi á því að þessari umræðu sé ekki frestað til morgundagsins þegar hæstv. fjármálaráðherra, núverandi fjármálaráðherra, er til staðar. Ég vek athygli á því að það var ekki hann sem mælti fyrir málinu upphaflega. Núna ber hann ábyrgð á málinu gagnvart þinginu sem nýr fjármálaráðherra og þá er mjög mikilvægt að hann komi og standi fyrir svörum. Hér var talað um hagstjórnarmistök. Var útboð á sínum tíma, skuldabréfaútboð, hagstjórnarmistök? Nei, þetta var algjört klúður og fúsk í skuldabréfaútboði að vera að festa vextina með þessu hætti, algjört klúður. Mig langar núna, svo að ég fari ekki í fundarstjórn forseta án þess að spyrja um tíma, að óska eftir því að mér verði svarað skriflegri fyrirspurn minni á þskj. 1037 sem ég lagði fram í febrúar síðastliðnum, um eftirlit með framkvæmd ákæruvaldsins. Ég hef ekki enn þá (Forseti hringir.) fengið svar við einfaldri spurningu sem má lesa í 19. gr. laga um meðferð sakamála. Það er ekki enn þá búið að svara mér og þetta er síðan í febrúar. Það mætti halda að ráðuneytismenn geti ekki lesið sér til gagns.