154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:34]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langar bara að lýsa yfir ánægju með að hér sé verið að setja lög sem byggð eru á reglugerð Evrópuþingsins hvað varðar frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Það er mjög mikilvægt, þegar verið er að nota svokallaðar skýjaþjónustur, sem er það sem við erum að nota í dag í tölvuheiminum, að þar sé vel tekið á því hvernig og hvar gögnin eru staðsett. Það þarf að tryggja það t.d. að hver sem er, hvaða lögregla sem er eða hvaða leyniþjónusta sem er, geti ekki bara gengið að gögnunum. Það er því ánægjulegt að sjá að hér er verið — það er þegar búið að fjalla um þessi gögn sem eru persónugreinanleg. Hér er verið að passa að ópersónugreinanlegu gögnin séu ekki heft enn meira en þarf og það er ánægjulegt að sjá að við erum að klára þá vinnu hér.