innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Mig langar aftur að lýsa yfir ánægju með að hér séum við að taka upp reglugerð frá Evrópusambandinu varðandi dreifða færsluskrártækni. Þetta er ákveðinn tungubrjótur en þetta er þýðing á enska hugtakinu „distributed ledger technology“, með leyfi forseta. Þetta er tækni sem liggur t.d. undir öllum rafmyntum og þetta er tækni sem hægt er að nota á margan hátt í fjármálageiranum. En það sem hefur skort, bæði hérlendis og í Evrópu, í langan tíma er umgjörð um það hvernig við ætlum að meðhöndla þessa hluti lagalega séð. Það var farið í þessa vinnu innan Evrópusambandsins og við erum hér að taka hana upp sem þýðir að íslensk nýsköpunarfyrirtæki geta farið að búa til og vinna með þessa tækni í fjármálageiranum og vita innan hvaða ramma það fellur þegar kemur að fjármálakerfinu.