breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna framhalds á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Frumvarpið er unnið í samstarfi þriggja ráðuneyta, fjármála- og efnahagsráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og innviðaráðuneytis. Í því eru lagðar til breytingar á þrennum lögum sem fela í sér stuðningsaðgerðir sem ætlað er að mæta aðstæðum heimila og rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfaranna á Reykjanesi.
Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru hluti af þeim stuðningsaðgerðum sem ríkisstjórnin kynnti opinberlega hinn 17. maí síðastliðinn.
Virðulegur forseti. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi:
Í fyrsta lagi er lagt til að gildistími laga um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 15/2024, verði framlengdur út árið 2024. Úrræðið mun að óbreyttum lögum gilda út júní á þessu ári. Að auki er lagt til að styrkfjárhæðir geti orðið umtalsvert hærri fyrir tímabilið frá júlí og til desember 2024 en mánuðina þar á undan, þar sem lagt er til að mögulegt verði að fá hámarksstyrk í tilviki 50% tekjufalls eða meira. Þá er lagt til að við útreikning á styrkfjárhæð verði heimilt að miða við fjölda stöðugilda við upphaf jarðhræringanna í byrjun nóvember í fyrra. Gert er ráð fyrir að hámarksstyrkfjárhæð á hvern rekstraraðila á mánuði taki ekki breytingum og verði áfram 6 millj. kr.
Í öðru lagi er lagt til að heimilt verði að veita sérstakan húsnæðisstuðning á grundvelli laga um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023 til 31. desember 2024 í stað 31. ágúst 2024. Samhliða því verði frestur til að sækja um stuðning framlengdur til 31. janúar 2025.
Í þriðja lagi, virðulegi forseti, er lagt til að það tímabil sem lögum um tímabundinn stuðning til greiðslu vegna launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 87/2023, er ætlað að ná til verði lengt til 31. ágúst 2024 en ella verði tímabilinu lokið 30. júní. Jafnframt er gert ráð fyrir að umsóknarfrestur um stuðning samkvæmt lögunum verði framlengdur til 30. nóvember 2024. Þá er lagt til að komi til úthlutunar arðs hjá atvinnurekanda sem fengið hefur stuðning til greiðslu launa á grundvelli laganna á tímabilinu 1. mars 2024 til og með 31. ágúst 2025 beri hlutaðeigandi atvinnurekandi að endurgreiða Vinnumálastofnun þann stuðning sem hann hefur fengið á grundvelli laganna áður en til úthlutunar arðs kemur, en gildandi lög miða við arðgreiðslur á tímabilinu 1. mars 2024 til og með 30. júní 2025.
Hvað mat á áhrifum þessa frumvarps varðar verður að taka fram að um er að ræða valfrjálst úrræði sem ekki liggur fyrir hve mikið muni verða nýtt. Engu að síður verður að gera ráð fyrir að samandregin niðurstaða fjárhagsáhrifa á ríkissjóð, vegna framhalds á öllum þeim stuðningsaðgerðum sem fjallað er um í frumvarpinu, geti orðið allt að 3,8 milljarðar kr.
Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.