breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. staðgengli fjármálaráðherra fyrir að flytja okkur þetta mál; það er mikilvægt að framlengja þessi úrræði. Ég hlýt þó að minna á að þegar við vorum fyrst að leggja þessi úrræði til sagði sú sem hér stendur og fleiri að þetta væri aðeins of skammur tími sem úrræðin ættu að vera í gildi og hvort ekki væri betra, bæði upp á fyrirsjáanleika og líka gagnvart vinnu þingsins, að hafa þetta lengra, og þá frekar með það í huga að geta lagt þetta af ef ástandið yrði þannig að ekki yrði lengur þörf á þessu. En það var ekki hlustað á það og því erum við hér að framlengja þetta, og allt í góðu með það.
Ég vil velta því upp hér að í greinargerð með frumvarpinu segir að ekki standi til að framlengja þessi úrræði frekar en nú er gert. Það eru mjög skýr skilaboð í greinargerð frumvarpsins, að ekki standi til að framlengja þessi úrræði frekar en þessu nemur.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Ókei, hvað svo, hvað þá ef það á ekki að framlengja þetta? Hvað eigum við að gera þegar þessar dagsetningar renna út og ekki stendur til að framlengja þær? Ég vil einnig spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki hefur verið hlustað á ítrekaðar og skiljanlegar kröfur fólks sem á atvinnuhúsnæði á svæðinu um að kaupa upp atvinnuhúsnæði eða veita því einhvers konar nýsköpunarstyrki til að koma sér fyrir á nýjum stað eða hvað sem er til að styðja undir að fólk geti byrjað upp á nýtt. Við vitum að eigendur margra smærri fyrirtækja eru líka í algerri sjálfheldu með að geta selt húsin sín á meðan atvinnuhúsnæði þeirra er þarna í frosti og óvíst hvað verður um það. Það fólk getur hvorki hreyft sig lönd né strönd og veit ekki hvernig það á að snúa sér á meðan allt er í lausu lofti. Er þetta til skoðunar hjá ríkisstjórninni eða stendur þetta kannski bara alls ekki og aldrei til?