breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar athugasemdir og ég skil mætavel að hv. þingmanni hafi jafnvel fundist að tíma þingsins hefði kannski verið betur varið ef þetta hefði verið framlengt. En það er hins vegar svo að það er mjög erfitt að sjá fyrir hvað er að gerast á þessu svæði. Ég tel að ríkisstjórnin hafi náð vel utan um húsnæðismál Grindvíkinga. Það sem eftir stendur er meiri fyrirsjáanleiki varðandi fyrirtækin og sérstaklega smærri fyrirtækin á svæðinu. Ég tel að það sé gríðarlega brýnt að við gerum það sem þarf að gera. Það er mjög erfitt að setja sig í spor þeirra sem eru á svæðinu og það eru ekki margir staðir á landinu sem hafa þurft að upplifa eins mikla ágjöf og nú er uppi.
Ég hvet til þess að við sameinumst enn frekar um þessar aðgerðir og mér finnst afar brýnt að þeir sem hafa í hyggju að efna til og fara í nýjan rekstur — að þau lán sem eru í boði haldi áfram að vera í boði. En það er líka brýnt að hlusta á þá aðila sem telja að ekki sé búið að ná algerlega utan um þetta. Það verður að gera.