154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:50]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég hlustaði eftir fremsta megni en ég heyrði ekki frá hæstv. ráðherra skýringar á því hvers vegna búið er að taka fyrir það í greinargerð að þessi úrræði verði framlengd frekar. Ég spurði sömuleiðis hvort það stæði yfir höfuð til að koma til móts við skiljanlega ósk fyrirtækja eða atvinnurekenda í Grindavík um að farið verði í uppkaup á atvinnuhúsnæði. Ég heyri að ráðherrann vill hlusta. Ég hef verið að hlusta á atvinnurekendur í Grindavík og þeirra ósk hefur verið mjög skýr um að þetta sé eitt af því sem þau þurfi ásamt öðrum leiðum til að koma betur undir sig fótunum.

Ég óska því aftur svara: Stendur yfir höfuð til að skoða það að kaupa upp atvinnuhúsnæði í Grindavík og hvers vegna er óvissan samt ekki meiri en svo að til stendur að stoppa þessi úrræði alfarið þegar þau renna út í þetta sinn?