breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin hefur sýnt að hún hefur náð vel utan um þessa miklu áskorun sem við stöndum frammi fyrir. Þær aðgerðir sem við höfum farið í á húsnæðismarkaði eru auðvitað með stærri aðgerðum sem nokkur ríkisstjórn hefur farið í. Bara til að vera skýr gagnvart hv. þingmanni þá er það alveg ljóst í mínum huga að vari þetta ástand áfram og við þurfum að aðstoða enn frekar þá munum við gera það. Það kann að vera að það verði þá aðrar leiðir notaðar til þess þar sem við erum að horfa enn frekar til framtíðar. Varðandi smærri atvinnurekstur og annað slíkt þá hefur hópur á vegum forsætisráðuneytisins verið að skoða það og þau frumvörp sem ég mæli hér fyrir eru m.a. afrakstur þess. Það kann að vera að það þurfi að skoða þetta enn frekar.
Ég ítreka að sú aðgerð sem ríkisstjórnin hefur farið í, með uppkaup á eignum sem eru á svæðinu, er mjög umfangsmikil. (Forseti hringir.) Við höldum áfram með stuðningsaðgerðir og það mun ekki stranda á okkur hvað þetta varðar.