154. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

1130. mál
[16:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það er auðvitað alltaf snúið að sækja hart að staðgengli en ég ætla nú samt að reyna að sjá hvort hæstv. ráðherra á svör fyrir mig. Ráðherrann sagði í svari við fyrra andsvari að ekki myndi standa á ríkisstjórninni að skoða þau mál sem upp kynnu að koma. Hæstv. forsætisráðherra upplýsti hér í fyrirspurnatíma fyrr í dag að mál til viðbótar við þau tvö sem hér eru rædd í dag muni koma fram á haustþingi sem er þá líklegt að sé að klárast einhvern tímann langleiðina undir áramót. Hefur verið rætt í þessu samhengi um þau áhrif sem það hefur að mögulegar viðbótarlausnir, til viðbótar við þær sem hér eru framlengdar, því að þetta er auðvitað bara framlengingarmál á þegar tilkomnum aðgerðum — hvaða áhrif það hefur á rekstur lítilla og millistórra fyrirtækja að draga það fram undir lok árs.

Af því að hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði út í húsnæði fyrirtækja langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort málefni þeirra íbúðaeininga eða húsa sem falla undir þessar 200–300 eignir sem falla utan þeirra lausna sem rammaðar voru inn hér í upphafi — hvort það komi til frekari skoðunar hjá ríkisstjórninni umfram það sem rammað er inn í þessu framlengingarmáli.